Ríkisráðsfundur verður svo á Bessastöðum seinna í dag. Stjórnarsáttmálinn verður þá öllum kunnur. Einnig verða ráðherrar í fyrsta ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur kynntir.
Þá verður líka ljóst hvað tveir þingmenn VG þau Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Andrés Ingi Jónsson hyggjast gera. Þau greiddu atkvæði gegn stjórnarsáttmálanum.
Flokkarnir þrír sem mynda þessa ríkisstjórn eiga allavega eitt mál sameiginlegt. Og þar gengur hnífurinn á milli þeirra.
En það eru Evrópumálin sem merkir að þeir hafna alfarið aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB).
Full samstaða er um þetta mál.
Vestræn efnahagssamvinna í Evrópu á sem sagt ekki upp á pallborðið í fyrsta ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur.