Sáttatónn í deilu ríkis og ljósmæðra

Það sést til lands í kjaradeilu ljósmæðra og ríkisins segir Áslaug Valsdóttir formaður Ljósmæðrafélags Íslands í samtali við ruv.is.. Samninganefndir deilenda héldu vinnufund í húsakynnum ríkissáttasemjara á miðvikudag og segir Áslaug að þar hafi átt sér stað gott samtal.
 

Rætt hafi verið saman í alvöru og hugmyndir að lausnum deilunnar komið frá báðum. Samninganefndirnar halda annan fund á mánudaginn 14.maí, en miðvikudaginn 16. maí verður formlegur samningafundur með ríkissáttasemjara. Áslaug segir ekkert fast í hendi, en andinn á fundinum í fyrradag hafi verið þannig að hún sé vongóð um að sjáist til lands í deilunni.

Alls hefur 21 tuttugu og ein ljósmóðir sagt upp störfum á Landspítalanum frá því að kjaradeila þeirra við ríkið harðnaði. Þá hafa þrjár ljósmæður sagt upp störfum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en engin á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Af þeim ljósmæðrum sem sagt hafa upp störfum á Landspítalanum eru sex á fæðingarvakt, fjórtán á meðgöngu- og sængurlegudeild og ein á göngudeild mæðraverndar. Ljósmæðurnar sem sagt hafa starfi sínu lausu fylla samanlagt 13,3 stöðugildi, segir í frétt ríkisvefsins.