Sáttagerð

Með ákvörðun Samkeppniseftirlitsins er náð sátt eftirlitsins við Landsbanka Íslands. Þessi sátt er gerð til að efla samkeppni í viðskiptabankaþjónustu. Sáttin miðar einkum að því draga úr kostnaði sem viðskiptavinir verða fyrir þegar þeir skipta um viðskiptabanka.

Einnig stuðlar sáttin að virkara samkeppnisaðhaldi af hálfu einstaklinga og lítilla fyrirtækja með þeim sem veita viðskiptabankaþjónustu á Íslandi. Þá vinnur þessi sátt gegn aðstæðum sem gætu rennt stöðum undir þögla samhæfingu á markaði / mörkuðum fyrir viðskiptabankaþjónustu.

Landsbanki Íslands var fyrstur banka til að gera ljúka viðræðum um málið við eftirlitið. Viðræður eftirlitsins við Arion banka og Íslandsbanka eru á lokastigi.

Frá þessu segir í frétt frá Samkeppniseftirlitinu.

 

rtá