Sáttanefndin var andvana fædd

Fallið hefur verið frá því að stofna sérstaka sáttanefnd í kjaradeilu Bandalags háskólamanna og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga við ríkið en hugmyndir í þá veru að slík nefnd gæti hraðað samningagerð komu upphaflega frá stjórnvöldum.


Sáttanefndin reyndist andvana fædd. Aldrei var mikill vilji til þess að reyna á hana af hálfu BHM og FÍH, enda hefði sáttanefndin í sjálfu sér ekki breytt neinu um samningaviðræður deilenda í húsakynnum ríkissáttasemjara, en þær hefðu haldið áfram, líklega með hléum, burtséð frá starfi nefndarinnar. Í þessu ljósi fannst stéttarfélagögunum að stofnun sérstakrar sáttanefndar hefði miklu fremur getað flækt stöðu málsins en leyst úr henni.


Hlé er nú á viðræðum deilenda. Síðdegis í gær hafði ekki enn verið boðað til nýs fundar í deilu félaganna við ríkið.