Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður Bandalags háskólamanna segir hugmyndir stjórnvalda um stofnun sáttanefndar í kjaradeilu ríkisins og BHM engu breyta um verkfall félagsmanna sinna, en á morgun verða tveir mánuðir frá því það hófst.
Stjórnvöld freista þess nú að höggva á hnútinn í þessari langvinnu kjaradeilu sem hefur, ásamt verkfalli hjúkrunarfræðinga sem hófst fyrir hálfri annarri viku, haft lamandi áhrif á starfsemi Landspítalans og stefnt öryggi sjúklinga í hættu. Sáttanefndin sem nú hefur verið boðuð var kynnt deilendum á fundi í velferðarráðuneytinu í morgun þar sem Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari og forystumenn BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga voru mættir til fundar við ráðuneytisfólk og efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar. Ekkert verður af stofnun sáttanefndarinnar nema allir málsaðilar sé því samþykkir - og í reynd hefur hún engin áhrif á vinnu samninganefnda ríkisins og félaganna tveggja að öðru leyti en því að fleiri leiða til lausnar verkfallsins verður leitað, ef af nefndarstarfinu verður. Eftir sem áður halda verkföll félagsmanna beggja félaganna áfram af fullum þunga.
Fundað verður í dag í félögum hjúkrunarfræðinga og bandalags háskólamanna um viðhorf félagsmanna til sáttanefndarinnar. Heimildir Hringbrautar herma að fari svo að sáttanefndin komist ekki á laggirnar aukist líkurnar verulega á að lög verði sett á verkföll beggja félaganna.