Það þarf að innleiða heildrænt mat á heimaþjónustu fyrir landið allt. Mikið vantar á að þjónustuíbúðir séu í boði í sveitarfélögum og það sárvantar öldrunargeðdeild á Landsspítalann, en þess utan þarf að innleiða heildrænt mat á heimaþjónustu fyrir landið allt.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í þættinum Okkar fólk á Hringbraut í kvöld, en þar fjallar sjónvarps- og tónlistarmaðurinn Helgi Pétursson um málefni aldraðs fólks á Íslandi.
Í þætti kvöldsins ræðir hann við Pálma V. Jónsson, yfirlækni öldrunarlækninga á Landsspítalanum sem útnefndur var heiðursvísindamaður spítalans í vor, en hann er einn helsti fræðimaður og kennari þjóðarinnar á þessu sviði. Helgi ræðir við hann um fjölmargar hugmyndir sem liggja fyrir til þess að draga úr stórkostlegum fyrirsjáanlegum kostnaði við byggingu hjúkrunarheimila, ef fram fer sem heldur. Einnig verður rætt við Berglindi Magnúsdóttur, forstöðumann heimaþjónustu hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar.
Okkar fólk er frumsýnt klukkan 20:00 í kvöld.