„Flokki fólksins finnst sárt að sjá hvað þjónusta við börn, eldri borgara og öryrkja hefur verið sett aftarlega í forgangsröðunina undanfarin ár. Vandinn er uppsafnaður og víða rótgróinn. Ekki dugar að státa af góðum hagnaði þegar hópi barna líður illa. Ekki hefur verið sett nægt fé í skólakerfið til að hægt sé að mæta þörfum allra barna. Nýlegt dæmi eru úr fréttum þar sem barn með djúpstæðan vanda var úthýst úr skólakerfinu. Hvar var hinn svokallaði „skóli án aðgreiningar“ í því máli?“
Þetta kemur fram í bókun Flokks fólksins vegna fyrri umræðu borgarstjórnar um ársreikning Reykjavíkurborgar árið 2018.
Um málefni eldri borgara segir: „Eins má minnast á eldri borgara sem fastir eru á Landspítala vegna þess að þeir ýmist komast ekki heim vegna biðlista í heimaþjónustu eða vegna þess að ekkert hjúkrunarrými er laust. Er Landspítalinn að verða stærsta og dýrasta hjúkrunarheimilið í borginni?“
„Kallað er eftir að valdhafar taki hér ábyrgð. Við 1. umræðu ársreiknings hafa hlutir verið ansi mikið fegraðir af hálfu meirihlutans. Vissulega er fjölmargt gott í borginni en Flokkur fólksins gerir kröfu um að borgarbúum sé sýnd sú virðing að ræða málefni borgarinnar út frá þeim raunveruleika sem við blasir,“ segir að lokum í bókuninni.