Sárnaði viðbrögð við pistli guðbergs

Hallgrími Helgasyni rithöfundi sárnaði hve margir reyndu að réttlæta eða útskýra orð Guðbergs Bergssonar, sem hæddist að Hallgrími fyrir að segja frá nauðgun sem hann varð fyrir sem ungur maður. Hallgrímur segist hafa burðast með ósýnilegan bakpoka í gegnum lífið. Hann hafi nú lagt hann frá sér.
 

Hallgrímur var gestur í Vikunni með Gísla Marteini í gærkvöld - og er hér vitnað til fréttar RÚV um viðtalið, en þar ræddi hann nýja skáldævisögu sína, Sjóveikur í München, og viðbrögðin við henni. Í bókinni segir hann frá því að honum hafi verið nauðgað af ókunnugum karlmanni á námsárunum í München. Að þessu hæddist Guðbergur Bergsson rithöfundur í pistli í DV og skrifaði meðal annars: „Hvaða kynvillingur hefur haft svona slæman smekk? Hefði ekki verið eins gott að fara upp á marglyttu og að fást við saklausa þjóhnappa hans? Líklega mun hið sanna seint koma í ljós.“ 

Pistill Guðbergs olli mikilli reiði og hneykslan en margir komu honum einnig til varnar. Sjálfur segist Hallgrímur sár yfir viðbrögðunum við orðum Guðbergs: \"Þetta var svo skrýtið. Ég var svolítið sár yfir viðbrögðum annarra í framhaldinu. Það var einhver umræða á Facebook - sem ég sá allt of mikið af - og menn voru að skrifa á minn vegg, að út frá einhverjum bókmenntalegum og fagurfræðilegum forsendum verðum við að skilja þennan texta öðruvísi,“ sagði rithöfundurinn í þætti Gísla Marteins.