„Áreitið frá þessum ákveðna stuðningsmanni byrjaði í þriðja leikhluta en í fyrstu var þetta mjög saklaust. Hann var eitthvað að gera grín að sokkunum mínum og ég svaraði honum bara og þakkaði honum fyrir. Í fjórða leikhluta fór hann hins vegar að vera með alvöru fordóma. Hann öskraði „You black shit,“ þegar ég steig á vítalínuna til þess að taka mig úr jafnvægi. Ég ákvað að hunsa hann en hann hélt áfram að kalla mig svartan skít í hvert skipti sem ég gerði eitthvað á vellinum.“
Þetta segir Kinu Rochford, en hann leikur með 1. Deildarliði Hamars í körfubolta. Hamar var í heimsókn á Hornafirði að keppa við Sindra. Stuðningsmaður Sindra hrópaði ítrekað níði að Rochford. Hann segir í samtali við mbl.is:
„Hann hélt svo áfram að niðurlægja mig og öskraði yfir allan salinn að ástæðan fyrir því að Þór hefði losað sig við mig væru sú að ég væri vonlaus körfuboltamaður. Þegar fjórar mínútur voru liðnar af leikhlutanum fór hann svo að kalla mig niggara og negra. Þetta gerðist ekki einu sinni eða tvisvar, hann hrópaði þetta í átt að mér stöðugt. „Hey negri, þú ert ömurlegur,“ sagði hann stöðugt þegar að ég var að taka vítaskot, yfir allan salinn.“
Rochford kveðst hafa orðið reiður en haldið ró sinni en hafi þó fyrst og fremst sárnað. Hann segist hafa beðið til Allah og það hafi gefið honum styrk. Þá kveðst hann aldrei hafa upplifað neitt þessu líkt á sínum ferli.
„Í fyrstu fann ég fyrir reiði en eftir á þá var ég fyrst og fremst sár. Viðbrögðin í íþróttahúsinu komu mér líka á óvart ef ég á að vera hreinskilinn. Það sagði enginn neitt og fólkið í kringum þennan aðila sem var með fordóma og dónaskap í minn garð hló bara. Það versta við þetta var að það voru börn í kringum hann sem hlógu að kynþáttafordómunum.“
Þá segir Rochford á öðrum stað að hann elski Ísland og hér líði honum vel.
„Hér býr fólk sem er með misjafnt þjóðerni og því hefur tekist að aðlagast á Íslandi. Þetta er land ákveðna tækifæra og hér getur fólk verið það sjálft og þarf ekki að þykjast [...] Mér hefur liðið mjög vel á Íslandi frá því ég kom hérna og ég elska landið.“
Sindri hefur sent frá sér afsökunarbeiðni vegna kynþáttaníðsins, viðeigandi bannað að koma á leiki liðsins og verður málið rannsakað frekar.