Sárir kennarar og háir vextir

Gestir Þjóðbrautar í dag verða nokkrir og víða verður komið við. Hádegisþáttur Þjóðbrautar er í beinni útsendingu í útvarpi Þjóðbrautar og hefst klukkan 12:30. Sjónvarpsþáttur Þjóðbrautar er á dagskrá klukkan 21:00.

Í hádegisþættinum verður skoðað hver staðan er hjá framhaldsskólakennurum, en vita er um óvissuna í stöðu grunnskólakennara. Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara verður í viðtali. Eins verður rætt við Lindu Blöndal sem er á ferðalagi á Vestfjörðum þar sem hún er að vinna efni sem verður svo sýnt í sjónvarpi Hringbrautar.

Í kvöld, klukkan 21:00, verður svo sjónvarpsþáttur Þjóðbrautar. Hann mun hefjast á innliti í efnahagslífið, ekki síst háu vextina og hið háa gengi íslensku krónunnar. Viðmælandi þess hluta þáttarins verður Ásdís Kristjánsdóttir. Og að lokum verður viðtal við Guðjón Friðriksson, einn fremsta sagnfræðing þjóðarinnar, um aldarafmæli alþýðuhreyfingarinnar á Íslandi.

Sigurjón M. Egilsson hefur umsjón með báðum þáttunum, Þjóðbraut í hádeginu klukkan 12:30 og í sjónvarpi klukkan 21:00.