Knattspyrnukappinn Guðni Bergsson lýsir sinni sárustu lífsreynslu í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut í kvöld, en þátturinn var upphaflega á dagskrá í mars á þessu ári - og vakti mikla athygli.
Guðni hefur vitaskuld frá miklu að segja, þó ekki væri nema glæsilegum knattspyrnuferli, en í þættinum fjallar hann ítarlega um einn mesta örlagadaginn í sínu lífi af einlægni og hispursleysi, en það var þegar maður réðst inn á lögfræðistofuna sem hann vinnur á og var nánast búinn að myrða samstarfsfélaga Guðna, sem brást við af fumleysi og bjargaði honum úr klóm árásarmannsins.
Árásin vakti gríðarlega athygli á sínum tíma, en í þætti kvöldsins lýsir Guðni atvikinu í fyrsta skipti með ítarlegum hætti - og af þeirri yfirvegun og ábyrgð sem hefur einkennt hann uyan vallar sem innan.
Endursýning þáttarins hefst klukkan 20:00 í kvöld.