Sara björk valin íþróttamaður ársins

Sara Björk Gunnarsdóttir knattspyrnukona er íþróttamaður ársins 2018 að mati Samtaka íþróttafréttamanna. Þetta er í fyrsta sinn sem hún hlýtur viðurkenninguna. Sara Björk er sjöunda konan sem hlýtur viðurkenninguna, sem var veitt í 63. skipti í gærkvöldi. Mbl.is er meðal þeirra sem greina frá.

Sara Björk er landsliðsfyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu og hefur verið undanfarin ár. Hún spilar fyrir Wolfsburg í Þýskalandi, sem er eitt allra sterkasta kvennalið heims í einni sterkustu deild heims. Þar gegndi hún lykilhlutverki þegar Wolfsburg vann bæði deild og bikar og lenti í öðru sæti í Meistaradeild evrópu.

Mbl.is greinir einnig frá því að Sara Björk sé nú næstleikjahæsta landsliðskona frá upphafi með 120 leiki og sjötta markahæsta með 19 mörk. Hún er aðeins 28 ára þrátt fyrir gífurlega leikreynslu og því ekki ólíklegt að hún slái leikjametið á komandi árum, sem Katrín Jónsdóttir á enn með 133 leiki.