Sara björk um eitt mesta áfallið: „sögu­sagnirnar voru á þá leið að við stæðum í fram­hjá­haldi“ - breytti reiði í orku

Sara Björk Gunnars­dóttir, ein besta knattspyrnukona heims og fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins segir frá uppvexti og afrekum sínum í bókinni Óstöðvandi sem gefin er út af Benedikt útgáfu. Þessa mögnuðu íþróttakonu þarf vart að kynna fyrir Íslendingum, hún er fyrirmynd margra knattspyrnumanna og afrekin óteljandi. Hún var til að mynda kosin íþróttamaður ársins árið 2018 og var hún aðeins sjöunda konan frá upphafi til að hljóta þá viðurkenningu. Einnig hefur hún gegnt lykilhlutverki hjá þýska stórliðinu Wolfsburg.

Aðeins 16 ára var Sara farin að gegna lykilhlutverki í íslenska landsliðinu. Sara er í viðtali við helgarblað Fréttablaðsins þar sem bókin er einnig til umfjöllunar. Í bókinni gerir hún upp afar erfiðan tíma í landsliðinu. Hún hafði aðeins verið hluti af liðinu í eitt ár þegar grófar og svæsnar kjaftasögur fóru af stað um hana og Sigurð Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfara. Þá var Sara aðeins 17 ára. Í Fréttablaðinu segir að oft hafi erfiðustu átökin ekki átt sér stað á vellinum sjálfum. Sara Björk segir um þennan erfiða tíma:

„Sögu­sagnirnar voru á þá leið að við stæðum í fram­hjá­haldi. Þetta var mikið á­fall. Ég átti kærasta og Siggi Raggi átti konu og barn. Þetta var sér­lega rætin kjafta­saga og at­laga að mann­orði okkar. Slúður­sögurnar gáfu í skyn að ég ætti ekki plássið í lands­liðinu skilið. Ég var sjálf ekki viss um hvernig ég ætti að tækla þetta og varð ó­örugg og kvíðin. For­eldrar mínir studdu vel við mig.“

Katrín Jónsdóttir, sem þá var fyrirliði landsliðsins bauð Söru aðstoð sína. Segir Sara að aðrir leikmenn hafi komið hinum grófu slúðursögum af stað. Sara segir:

„Þetta sveið svo ó­gur­lega, sér­stak­lega vegna þess að ég hafði lagt svo hart að mér við að yfir­stíga meiðslin. Ég lagði allt í að komast á þann stað sem ég var komin á og nú var vegið að mann­orði mínu og dylgjað um að ég hefði ekki unnið fyrir þeirri stöðu sem ég var komin í.“

Söru tókst að nýta þessa sáru reynslu til að styrkja sig og þar hafi keppnisskapið leikið lykilhlutverk en það tók hana langan tíma að jafna sig. Hún hafi nýtt reiðina í orku á knattspyrnuvellinum og þá hafi reynslan gert hana að betri liðsfélaga. Hún bætir við að nokkrir leikmenn hafi síðar beðið hana afsökunar. Sara segir:

„Mér tókst að breyta reiði í orku á fót­bolta­vellinum og at­vikið gerði mig líka að betri liðs­fé­laga. Mér dettur ekki í hug að taka þátt í ill­indum eða að grafa undan liðs­fé­lögum mínum. En það tók nú samt langan tíma að komast yfir þetta. Ég á erfitt með að treysta.“

Hún var staðráðin í að láta þetta ekki brjóta sig niður.

„Mér finnst merki­legt að ég hafi náð að bregðast þannig við svo ung því þetta hefði auð­veld­lega getað eyði­lagt mig og brotið niður. Ég hugsa að keppnis­skapið hafi hjálpað mér í gegnum þessa reynslu.“

Þá gefur Sara ungum konum og segir að besta veganestið sé að láta ekkert stöðva sig.

„Ekkert. Ekki meiðsli, ekki erfið­leika. Það skiptir heldur ekki máli hversu gömul þú ert. Ef þú ert til­búin að leggja mikið á þig þá muntu komast langt.“

Á vef Fréttablaðsins má finna ítarlegt viðtal við Söru Björk.