Sannleikanum verður hver sárreiðastur

Töluverðs taugatitrings gætir í verkalýðshreyfingu vegna kosningar í nýja stjórn Eflingar og ganga hnútuköstin manna á milli, svo sem sjá má af nýlegri grein Elínbjargar Magnúsdóttur í Morgunblaðinu sem er svargrein hennar við tilskrifi Birnu Gunnarsdóttur:

\"Birna Gunnarsdóttir minjafræðingur ritar grein í Morgunblaðið fimmtudaginn 22. febrúar sl. þar sem hún vegur stórlega að persónu minni og störfum vegna aðkomu minnar að starfi Eflingar – stéttarfélags. Þar hef ég gegnt hlutverki sem fulltrúi í uppstillingarnefnd félagsins og ýmsum öðrum trúnaðarstörfum fyrir stéttarfélög, þar á meðal Eflingu. Það er erfitt að eiga orðastað við fólk sem ég veit ekkert um, ekki er hún á framboðslistanum, ekki kynnir hún sig sem fé- lagsmann Eflingar en ég skil málið svo að hún sé félagsmaður í Sósíalistaflokki Íslands. Kannski er hún meðal háskólafólksins sem nú telur sig geta haft vit fyrir félagsmönnum Eflingar. Mér sýnist að í hópi mótframboðsins sé nóg af því fólki. Fyrst vil ég segja að það er reginmunur á því fólki sem er í öllum stjórnmálaflokkum innan Eflingar og heldur því algerlega aðskildu frá starfi sínu í stéttarfélögunum og hinum eins og Sósíalistaflokknum sem beitir sér beinlínis innan stéttarfélaga. Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei reynt að hafa afskipti af störfum mínum í verkalýðsfélögum, þar á meðal Eflingu. Ég hef hins vegar alla tíð reynt að koma sjónarmiðum verkalýðshreyfingarinnar til skila í mínu starfi að stjórnmálum. Ef Birna Gunnarsdóttir skilur ekki muninn á þessu og því að Sósíalistaflokkurinn undir stjórn Gunnars Smára Egilssonar hefur ákveð- ið að grafa undan og brjóta stjórnir verkalýðsfélaga á bak aftur, þá er hún illa viðræðuhæf um málið. Ég mun ekki elta ólar við þann hroka sem Birna Gunnarsdóttir minjafræðingur sýnir mér með orðum um að ég þurfi byrjendakennslu í sögu verkalýðshreyfingarinnar og ég kunni ekki að skrifa blaðagreinar. Sama hroka og lítilsvirðingu sýnir hún formannsefni stjórnar og trúnaðarráðs. Ég þarf enga tilsögn frá Birnu um neitt af þessu. Ég hef verið verkakona allt mitt líf og þekki verkalýðshreyfinguna innan ASÍ og fólkið sem þar starfar mjög vel. Birna líkir Sósíalistaflokki Gunnars Smára við Alþýðuflokkinn gamla sem barðist fyrir vökulögum og grundvallarmálum launafólks í árdaga verkalýðsfélaganna. Þetta er ekkert annað en sögufölsun og svívirðing að bera saman nýjan Sósíalistaflokk með foringja úr atvinnurekendastétt sem er þekktur fyrir allt annað en virðingu fyrir launafólki og brautryðjendur í verkalýðsbaráttu síðustu aldar. Ég segi bara: Hafðu skömm fyrir þennan samjöfnuð, Birna. Mér sýnist að mótframboð Gunnar Smára Egilssonar sé nú komið í mikinn vanda og reyna nú fylgismenn þess að bera sem mest ósannindi upp á stéttarfélagið sitt, skrifstofu þess, stjórnarmenn og starfsfólk. Þau hafa fengið vini sína á fjölmiðlum til að róta sem mestum ósannindum upp um Eflingu og nota gamalt bragð sem gefst vel fyrir þá sem þekkja ekki til. Það er farið frá manni til manns þar til mannorð er drepið og virðingin hans eins og segir í alkunnu ljóði. Það vekur spurningar um stöðu þessa framboðs þegar fylgismenn þess þurfa að nota ósannindi dag eftir dag til að grafa undan réttkjörinni stjórn Eflingar. Sannleikanum verður hver sárreiðastur.\"