Sanngirnisbætur nema um þremur milljörðum

Greidd­ar hafa verið sann­girn­is­bæt­ur til hátt í 1.200 ein­stak­linga og nema bóta­greiðslur um þremur millj­örðum króna.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu vegna loka­skýrslu um sann­girn­is­bæt­ur fyr­ir mis­gjörðir á stofn­un­um eða heim­il­um fyr­ir börn. Ekki ligg­ur fyr­ir hve marg­ir dvöldu á þess­um stofn­un­um en ætla má að það hafi verið um 5.000 ein­stak­ling­ar/​börn.

Veru­legt tjón vegna harðræðis og of­beld­is

„Ljóst er að mjög marg­ir urðu fyr­ir veru­legu tjóni af dvöl á vistheim­ili vegna þess harðræðis og of­beld­is sem þeir máttu sæta,“ seg­ir í skýrsl­unni.

Fólkið varð fyr­ir tjóni að hluta til vegna van­rækslu og lít­ils eft­ir­lits op­in­berra aðila en einnig vegna aðstæðnanna sem voru uppi á þess­um tíma og „stofnana­legu viðmóti sem mætti þeim sem þar dvöldu“.

Í skýrsl­unni seg­ir einnig: „Enda virt­ist oft skorta að börn­um væri veitt sú ör­ygg­is­til­finn­ing og hlýja sem er þeim nauðsyn­leg. Í skýrsl­um vistheim­ila­nefnd­ar kem­ur fram að eft­ir­liti rík­is­ins með starf­semi margra þeirra heim­ila sem um ræðir var mjög ábóta­vant í mörg­um til­vik­um. Þá virðist sem ákv­arðanir um rekst­ur sumra heim­il­anna hafi verið tekn­ar að lítt ígrunduðu máli og jafn­vel í trássi við ráðlegg­ing­ar sér­fræðinga.“

Nánar á

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/12/14/3_milljardar_til_1_200_einstaklinga/