Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, sat hjá í öllum kosningum borgarráðs um tímabundið áfengisleyfi aðfaranótt mánudags vegna beinnar útsendingar frá Superbowl í Bandaríkjunum.
Alls voru sjö umsóknir teknar fyrir í borgarráði, þar af fjórar á nýjasta fundi borgarráðs.
Í öllum tilvikum voru umsóknirnar samþykktar en í öllum tilvikum er það bókað að borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands, Sanna Magdalena, sæti hjá við afgreiðslu málsins.