Samveran með vinum og fjölskyldu er það allra besta við jólin

Það styttist senn í aðfangadag og allir eru óða önn að undirbúa komu jólanna.  Ilmurinn úr eldhúsunum er ennþá lokkandi og fjölmargir njóta þess að baka sínar uppáhalds kökur og smákökur.  Una Dögg Guðmundsdóttir er ein af þeim sem bakar mikið fyrir jólin og Sjöfn Þórðar heimsótti hana á dögunum og forvitnaðist um hefðir og siði á hennar heimili á aðventunni. „Ég  baka alltaf mikið fyrir jólin, er alin upp við mikinn jólakærleika og ilmurinn af smákökum situr í mér úr æsku en mamma passaði sko upp á að hafa dýrindis smákökur í desember,“ segir Una Dögg dreymin á svip.  „Ég hef hinsvegar bakað gríðarlega mikið af Sörum síðustu ár, Sörur eru svo bragðgóðar líka stundum eins og konfekt.  Ég hef alltaf notað sömu uppskriftina sem mér finnst þægileg og einföld og um leið virkilega góð. Það sem er skemmtilegt við söru baksturinn er að hann er alltaf að breytast og þróast eins og svo margt annað í bakstrinum. Til að mynda eru margir að setja dumble karamellufyllingar í Sörurnar, allskonar súkkulaðihjúp og turkish pepper duft yfir þær.“

Una Dögg segir að jólin séu hennar uppáhaldstími og undirbúningurinn fyrir þau sé ávallt skemmtilegur og gefandi.  „Þá eru verkefni margvísleg og skemmtileg, það er alltaf verið að skreyta, versla jólagjafir og svo er það baksturinn og samveran með vinum og fjölskyldu sem er það allra besta við jólin.“

Að búa til minningar með yngri kynslóðinni er líka verðugt verkefni og halda í ákveðnar hefðir sem fylgja aðventunni að mati Unu Daggar.  „Ég upplifi líka enn meiri jólagleði í gegnum stelpurnar mínar, jólin eru jú hátíð barnanna og þær eru alveg jafn mikil jólabörn eins og mamma sín. Við erum svo sannarlega búnar að njóta aðventunnar saman, fórum á jólatónleika, við skruppum líka til Edinborgar að versla jólagjafir en þar komst maður svo sannarlega í jólaskap röltandi um jólamarkaði með heitt kakó er alveg yndislegt upplifun með sínum nánustu,“ segir Una Dögg að lokum.

Una Dögg Guðmundsdóttir – Uppáhalds listinn:

Börn:  Alexandra 12 ára og Andrea 7 ára.

Gæludýr:  Hundurinn Moli.

Besta Jólamyndin:  Þær eru tvær Christmas Vacation og Holiday.

Ómissandi á aðventunni:  Að hitta vini og fjölskyldu og spila saman og skemmta okkur.

Jólamatur:  Hamborgarahryggur & rjúpa get ekki gert upp á milli. 

Jóladrykkur:  Klassískt gott rauðvín og svo auðvitað malt & appelsín.

Hvít eða rauð jól:  Ég held að hin fullkomnu jól séu þannig að það fari að kyngja niður fallegum jólasnjó svona í kringum 22.desember og svo er auðvitað alltaf hátíðlegt að hafa hvíta jörð i kringum hátíðsdagana.

Una Dögg gefur hér lesendum uppskriftina af Sörunum sínum sem árlega eru bakaðar í miklu upplagi.

\"\"

Sörur að hætti Unu Daggar

Botnar

220 g möndlur (malaðar)

230 g flórsykur

4 stk. eggjahvítur

Byrjið á því að hita bakarofninni í 160°C hita og hafið blásturinn á.  Byrjið síðan á því að stífþeytta eggjahvíturnar vel og síðan er flórsykrinum og möluðu möndlunum bætt rólega út í.  Búið til litla botna sem miðast við munnbita stærð, gott að nota teskeið og setjið á bökunarplötu klæddda með smjörpappír. Bakið í um það bil 12 mínútur.  Kælið botnana áður en kremið er sett á.

Krem

4 stk. eggjarauður

160 g flórsykur

160 g smjör

50 g kakó

Setjið allt hráefnið saman í skál og þeytið vel eða þar til krem verður þykkt og með fallegri áferð. Síðan er kremið sett á slétta hluta marengsbotnana, bæði hægt að gera það með því að setja kremið í sprautapoka eða með teskeið.  Frystið botnana áður en kökurnar eru hjúpaðar með brædda súkkulaðinu.

Súkkulaði hjúpur

300 g suðusúkkulaði (eða það súkkulaði sem ykkur langar að hafa)

Bræðið við lágan hita. Loks er kökunum dýft í súkkulaði, þeim hluta þar sem kremið er á og raða uppá plötur.  Að lokum eru kökurnar fyrsta og geymdar þar þangað til þær eru bornar til framreiðslu.

Gleðilega jólahátíð.