Morgnublaðið er með þessa frétt. Formaður SFS staðfestir að fréttin sé rétt. Tilefnið mun vera höfnun SA á beiðnum félaga í SFS um greiðslur úr vinnudeilusjóði SA í sjómannaverkfallinu.
Morgunblaðið skrifar að því hafi verið ákveðið innan SFS að gera um það tillögu að vinnudeilusjóðurinn yrði annað hvort lagður niður eða SFS fengi endurgreidda þá fjármuni sem SFS hefur greitt í sjóðinn.
SFS eru stór samtök innan SA en stærst eru SI-Samtök iðnaðarins. Viðbrögð SA eru þau að eðlilegt sé að aðildarfélög innan SA skoði reglulega umhverfi sitt.
rtá
Nánar www.mbl.is