Hreppsnefnd Árneshrepps á Ströndum norður samþykkti í gær skipulagstillögur varðandi virkjun Hvalár í Ófeigsfirði sem tengja mun vatnasvið af heiðunum á milli Djúps og Stranda, sunnan Drangajökuls.
Styr hefue staðið um þessi virkjanaáform, en náttúruverndarsinnar vilja ekki sjá mannvirkjagerð af þessu tagi \"á síðustu óspilltu víðernum Vestfjarðakjálka\" eins og það er nefnt, en þeir benda á hversu nálægt þetta svæði er friðlandinu á Hornstörndum.
Heimamenn eru einnig klofnir í málinu. Þrír nefndarmenn í hreppsnefnd Árneshrepps eru fylgjandi virkjun, en tveir þeirra eru á móti henni, en það er nú komið undir meirihluta nefndarinnar hvert framhaldið verður, alltént er ljóst að enn eitt skrefið að Hvalárvirkjun hefur verið stigið.