Samþykktu breyttan brexit samning

Tillaga um breyttan útgöngusamning Breta úr Evrópusambandinu var samþykkt í neðri deild breska þingsins í gær. Þrátt fyrir það er ekki útlit fyrir að leiðtogar ESB séu reiðubúnir að endurskoða samninginn. Mbl.is greinir frá.

Tillagan, sem var lögð fram af Graham Brady þingmanni Íhaldsflokksins, felur í sér breytingu á varúðarráðstöfunarákvæði sem kveður á um að ef enginn viðskiptasamningur liggur fyrir milli Bretlands og ESB tveimur árum eftir útgöngu Breta verði þeir áfram í tollabandalagi ESB, eða þar til Bretar og ESB komast að samkomulagi um annað. Tillagan var samþykkt með 16 atkvæða mun.

Theresa May, forsætisráðherra Bretlands ræddi við leiðtoga ESB í gær, þar á meðal Jean-Claude Juncker, forseta framkvæmdastjórnar ESB, en það virtist ekki hafa borið neinn árangur. Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESB, sagði eftir að breska þingið samþykkti tillöguna að ekki kæmi til greina að semja um nýjan útgöngusamning. May trúir því eftir sem áður að hægt verði að semja um breytingu á samningnum, en viðurkennir að það verði erfitt.