Samtal verktaka og sveitarstjóra eðlilegt

Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður Vesturverks segir ekkert óeðlilegt við samskipti sveitarstjórnar Árneshrepps við fyrirtækið sem hyggst reisa Hvalárvirkjun, en eins og kunnugt er leitaði oddviti Árneshrepps eftir aðstoð forkólfa Vesturverks við gerð umsagnar frá hreppsnefnd um virkjunina. Skipulagsstofnun hefur óskað eftir upplýsingum um samskiptin.
 
Ásgeir segir við ruv.is í dag að ekki sé óeðlilegt að sveitarfélag og verktaki ræði saman um fyrirhugaðar framkvæmdir: „Ég fæ það nú ekki séð. Ég hef tekið þátt í fjölmörgum svipuðum verkefnum í gegnum árin og ég hef aldrei séð það gerast án þess að það væru náin samskipti á milli framkvæmdaraðila og sveitarfélags. Það skiptir hins vegar máli um hvað og hvernig samskiptin eru. Í þessu tiltekna máli spyr sveitarfélagið okkur, framkvæmdaraðilann, álits um tiltekna þætti. Við svörum því eins og öðru sem að okkur er beint. Það hefur hins vegar ekkert með álit sveitarfélagsins að gera, hvað við segjum. Síðan er það sveitarfélagið sjálft sem mótar sína skoðun og sitt álit sem það þarf að taka ákvörðun um eða senda frá sér. Það er alls ekkert samasemmerki á milli þess sem við segjum, sem okkar álit, og þess sem sveitarfélagið gefur sem sitt álit. Það er bara alls ekkert samasemmerki þar á milli,“ sagði Ásgeir í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun.