Samstjórn xd og xs vel möguleg

Það er vel hugsandi að Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn slíðri sverðin í borginni og myndi tveggja flokka meirihluta segir Gunnar Smári Egilsson, annar tveggja gesta Sigmundar Ernis í Ritstjórunum í gærkvöld - og gott ef það eru ekki mestar líkur á því samstarfi miðað við úrslit kosninganna, bætir hann við.

Sigmar Guðmundsson, sem einnig er gestur þáttarins, er ekki alveg sömu skoðunar og Gunnar Smári og telur líklegast að Viðreisn renni inn í samstarf með gamla meirihlutanum, en flokkurinn verði þó að halda vel á sínum spilum, hann geti allt eins kastað frá sér trompunum ef hann lesi ekki rétt í stöðuna.

Þeir eru sammála um að stórtap VG sé ekkert annað en reiðarslag fyrir flokkinn og metur Gunnar Smári það svo að ríkisstjórnarsamstarfið geti verið í hættu vegna augljósrar vanþóknunar grasrótarinnar á möllinni á samstarfi VG með gömlu hagsmunagæsluflokkunum. 

Og Samfylkingin geti ekki vel við unað, niðurstaðan sé ósigur fyrir Dag B. Eggertsson sem geti varla gert tilkall til þess að gegna borgarstjórastöðunni um ókomin ár. 

Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00 og endursýndir í dag, en eru einnig aðgengilegir á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.