Samsteypustjórnin sprungin

Utanríkisráðherra Austurríkis Sebastian Kurz er nýr leiðtogi helsta hægriflokks Austurríkis. Hann krefst þingrofs og kosninga án tafar. Kanslari Austurríkis Christian Kern leiðir samsteypustjón mið-hægri flokka með flokki Sebastian Kurz.

Christina Kern er leiðtogi austurríska jafnaðarmannaflokksins en flokkur Sebastian Kurz er íhaldsflokkur sem velur sér nafnið Alþýðuflokkur Austurríkis. Þessir flokkar hafa jafnan farið fyrir samsteypustjórnum í Austurríki og það í nokkuð mörg ár. Úrslit kosninganna kunna að tryggja lýðhyllisflokki setu í næstu ríkisstjórn.

Flokkurinn sá kallast Frelsisflokkurinn. Eins og aðrir lýðhyllisflokkar innan Evrópusambandsins (ESB) setur þessi flokkur málefni aðkomufólks í Austurríki á oddinn.

Þessar væntanlegu kosningar vekja nokkra eftirtekt sökum þess að Austrríki tekur við forsæti í leiðtogaráði Evrópusambandsins um mitt ár 2018. Fari svo að hægri flokkar fá brautargengi i komandi þingskosningum kann næsta ríkisstjórn Austurríkis að reka einarða stefnu innnanlands um málefni aðkomufólks og einnig innan ESB.

Austurríki er lýðveldi níu sambandsríkja. Vald forseta Austurríkis er mikið og núverandi forseti landsins bar sigurorð að frambjóðanda Frelsisflokksins í forsetakosningum en mjótt var mununum.

Austurríki er ekki lengur jaðarsvæði í Evrópu og þróun stjórnmála í Austurríki varðar allar ESB þjóðir en landið gekk í ESB árið 1995. Landið hefur allar götur frá 1945 tekið við fjölda aðkomufólks en nú er svo komið að langlundargerð og umburðarlyndi Austurríkismanna virðist þrotið ef marka má skoðanakannanir. Fréttaskýrendur minna á að þó franska Þjóðfylkingin hafi ekki sigrað í forsetakosningum í Frakklandi vegni lýðhyllisflokkum víða vel innan ESB. Svo sem í Þýsklandi og í Austurríki.  

rtá   

Nánar www.dw.com