Samstaða náðist um þjóðaratkvæði

Stjórnarskrárnefnd hefur náð saman um tillögur um þjóðaratkvæðagreiðslur, auðlindamál og umhverfismál. Stefnt er að því að greina frá samkomulaginu á morgun.
 

Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV í  gær, en þar segir að stefnt sé að því að nefndin ljúki störfum tímanlega svo hægt verði að samþykkja frumvarp til breytinga á stjórnarskránni á kjörtímabilinu. Áður hafði verið áætlað að ljúka vinnunni í janúar á þessu ári, en augljóst er að verkið dregst fram eftir árinu.

Nefndin átti fund í fyrradag og hefur náðst samkomulag um veigamikil atriði. Nefndarmenn sem fréttastofa ræddi við verjast frétta en Jón Kristjánsson fyrrverandi ráðherra og annar fulltrúa Framsóknarflokksins í nefndinni staðfesti að útlit væri fyrir samkomulag og hann væri ánægður með að það hilllti undir lok þessa áfanga.

Heimildir fréttastofu herma að nefndin hafi náð saman um þjóðaratkvæðagreiðslur þar sem kveðið sé á um að 15% atkvæðisbærra manna geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um lög sem Alþingi samþykkir. Þá hefur fréttastofan heimildir fyrir því að samkomulag hafi tekist um auðlindir, að þær séu í eigu þjóðarinnar og eðlilegt gjald komi fyrir nýtingu þeirra. Þá eru nefndarmenn sammála um að náttúrunnar og umhverfisins verði getið í stjórnarskrá þar sem kveðið sé á um að náttúran sé á ábyrgð allra og að gengið sé um hana með sjálfbærum hætti. Stjórnarskrárnefnd kemur aftur saman til fundar á morgun, en stefnt er að því að hún skili af sér tillögunum fyrir helgi, segir í frétt RÚV í hádeginu sem hér hefur verið vitnað til.