Verkalýðsfélagið Framsýn á Húsavík, sem semur fyrir allt verkafólk í Þingeyjarsýslum, er byrjað að semja við fyrirtæki á svæðinu um 300 þúsund króna lágmarkslaun. Fyrirtækin hafa sjálf haft frumkvæði að því að ganga frá samningum í þessa veru og telja hag sínum betur borgið að ganga að kröfum Starfsgreinasambands Íslands, sem Framsýn er hluti af, fremur en að tefla á tvísýnu verkfallsaðgerða og vinnustöðvunar.
Aðalsteinn Á. Baldursson formaður Framsýnar segir félagið hafa fullt umboð til að semja við þau fyrirtæki sem þess óska, jafnt fyrirtæki innan Samtaka atvinnulífsins og utan þess. Á starfssvæði Framsýnar er fjöldi fyrirtækja í fiskvinnslu, matvinnslu og ferðaþjónustu sem yrðu af gríðarlegum tekjum ef til verkfalls kæmi. Aðalsteinn segir ekkert óttast í þessum efnum; samstaða innan samtaka atvinnurekenda sé hvort eð er löngu brostin. Hann segir þau fyrirtæki sem ýmist séu búin að semja eða hafi ljáð máls á samningum vera tilbúin að fallast á launakröfur Starfsgreinasambandsins; enginn afsláttur verði þar gefinn.