Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrum iðnaðar- og viðskiptaráðherra Sjálfstæðisflokksins, hefur sagt af sér sem verkefnastjóri Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í Reykjavík í ár vegna samstarfsörðugleika við Örnu Schram, formann stjórnar verkefnisins.
Í samtali við Fréttablaðið segist Arna Schram ekki vilja tjá sig um ástæður uppsagnar Ragnheiðar Elínar en staðfestir þó að hún hafi tekið við henni.
Ragnheiður Elín skrifar á Facebook: „Ég get staðfest það að ég hef sagt upp störfum sem verkefnisstjóri Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna. Ástæða uppsagnarinnar eru samstarfsörðugleikar við formann stjórnar verkefnisins. Ég hef átt frábært samstarf við alla þá fjölmörgu samstarfsaðila þessa skemmtilega verkefnis og við starfsfólk EFA í Berlín og geng stolt frá því verki sem ég hef lagt metnað minn í. Nú verður það hins vegar annarra að ljúka því og óska ég þeim öllum velfarnaðar og þess að EFA 2020 verði hin glæsilegasta og okkur öllum sem að henni hafa komið til sóma. Meira hef ég ekki um þetta að segja.“
Ragnheiður Elín sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn árin 2007-2017 og var iðnaðar- og viðskiptaráðherra 2013-2017. Hún var valin úr hópi þeirra 45 sem sóttu um stöðuna síðasta sumar.
Arna Schram sagði þá við Fréttablaðið í dag að Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir, sérfræðingur í menntamálaráðuneytinu, hafi verið ráðin sem nýr verkefnastjóri fyrir hátíðina sem fer fram í desember í Hörpunni.