Samningur í höfn

„Dagurinn í dag er sögulegur!\" segir íranskur diplómati, en heimildir fregna að samningar um kjarnorkuáætlun Írana séu loks í höfn. Samningaviðræður hafa staðið yfir í nær 20 mánuði samkvæmt fréttavef CNN.

Fréttastofa RÚV greindi frá því í gærkvöldi að enn væri ósamið í deilunni við Íran, en þær snúast um að koma í veg fyrir að Íran geti framleitt kjarnorkuvopn. Í staðinn krefjast Íranir að öllum viðskiptaþvingunum verði aflétt, en slíkar þvinganir hafa haft mikil áhrif á efnahag landsins að undanförnu. Nýjasta lota samningaviðræðnanna hafði staðið yfir í 17 daga í Vínarborg í Austurríki, en virðist nú vera lokið. Enn á þó eftir að semja um tæknileg atriði samningsins og því ljóst að enn gæti verið langt í land. Dagurinn í dag er þó sögulegur að mati heimildarmanna. 

Í samtali við CNN sagði Fawaz Gerges, prófessor í miðausturlandafræðum við London School of Economics að dagurinn í dag væri góður dagur, sér í lagi góður fyrir málamiðlanir og samningaviðræður og sérstaklega góður fyrir nýtt upphaf í samskiptum Miðausturlanda og Bandaríkjanna. 

Samningurinn hefur verið grundvallaratriði í utanríkismálastefnu Barack Obama Bandaríkjaforseta og er talinn endurnýja öll samskipti á milli Írans og Vesturlanda.