Samningum ekki sagt upp

Niðurstaða forsendunefndar ASÍ og SA vegna endurskoðunar kjarasamninga er að tvær af þremur forsendum standist en ein gerir það ekki. Sú snýst um launaþróun annarra hópa. Samninganefnd ASÍ hefur engu að síður, m.a. að undangengnum fundarhöldum í baklandi stéttarfélaganna, ákveðið að segja ekki upp núgildandi kjarasamningi.

Forsendurnar sem voru til skoðunar eru: Í fyrsta lagi, fjármögnun stjórnvalda á stofnframlögum ríkisins til 2.300 almennra íbúða á árunum 2016-2019 eða að hámarki 600 á ári. Í annan stað mat á því hvort sú launastefna og þær launahækkanir sem í samningnum fólust hafi verið stefnumarkandi fyrir aðra á vinnumarkaði (32% hækkun frá nóv 2013-des 2018). Í þriðja lagi aukinn kaupmáttur á samningstímanum.

Í tilkynningu segir að fyrsta og þriðja forsendan liðir 1 og 3 standast skoðun en liður 2 sé forsendubrestur eins og áður segir.

Mat samninganefndar ASÍ er að ákveðin verðmæti séu í núgildandi samningi (4,5% almenn launahækkun 1. maí og hækkun á mótframlagi atvinnurekenda í lífeyrissjóð um1,5% 1. júlí). Einnig að lítill áhugi sé á því að almenni markaðurinn fari fyrstur í þeim kjaraviðræðum sem framundan eru en mörg opinberu félaganna eru með lausa samninga síðar á þessu ári.