Samningum ekki sagt upp

Formenn 44 aðildarfélaga Alþýðusambandsins ákváðu að segja ekki upp almennum kjarasamningum. Þetta staðfesta tveir viðmælendur Fréttastofu Rúv sem viðstaddir voru formannafundinn sem hófst Kl.11 á Hilton hóteli - og sagt er frá á vef fréttastofunnar ruv.is
 

Rafræn atkvæðagreiðsla um hvort segja ætti upp samningum hófst rétt fyrir klukkan 14. Rúv segist hafa heimildir fyrir því að niðurstaða sú að kjarasamningum verði ekki sagt upp. 

Formenn sex aðildarfélaga hið minnsta sögðust áður ætla að greiða atkvæði með uppsögn.