Afleiðingum útgöngu Breta úr Evrópusambandinu án samnings verður helst líkt við áhrif eldgossins í Eyjafjallajökli 2010, að mati breska forsætisráðuneytisins. Breska blaðið The Guardian greinir frá þessu. Starfsfólk breska stjórnarráðsins stendur nú í ströngu við að skipuleggja og undirbúa þjálfun þúsunda embættismanna og starfsmanna stjórnsýslunnar í að takast á við mögulegar afleiðingar þess að Bretland gangi úr Evrópusambandinu án þess að fyrir liggi samningur um viðskilnaðinn.
Hefur starfsfólk stjórnsýslunnar verið hvatt til að kynna sér gosið í Eyjafjallajökli, sem hafi valdið mikilli röskun á mörgum sviðum samfélagsins hér á Íslandi og þar að auki haft áhrif á líf hundraða þúsunda manna í allri Evrópu, þar sem hundruðum flugferða var aflýst vegna gossins.
Þessar hamfarir, segir forsætisráðuneytið í leiðbeiningum sínum, eru nærtækasta dæmið um það upplausnarástand sem stjórnsýslan í Bretlandi gæti þurft að takast á við, ef ekki tekst að semja um Brexit áður en til þess kemur, hinn 29. mars næstkomandi.
Nánar á
http://www.ruv.is/frett/samningslaust-brexit-verra-en-eyjafjallajokull