Samningi um kaup á eigum úr þrotabúi wow air hefur verið rift: engin greiðsla innt af hendi

Eins og fram kom í fjölmiðlum fyrr í mánuðinum höfðu náðst samningar um kaup bandarísku kaupsýslukonunnar Michele Ballarin og félags hennar, Oasis Aviation Group, á flugrekstrartengdum eignum úr þrotabúi WOW air. Nú hefur þessum samningum verið rift.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Fram kemur að síendurtekið hafi dregist að greiða fyrstu greiðsluna samkvæmt samningnum sem var gerður á milli þrotabúsins og Oasis Aviation Group.

Í frétt Fréttablaðsins frá 12. júlí var fullyrt að viðskiptin væru frágengin og að eingreiðsla hefði verið innt af hendi. Morgunblaðið segir hins vegar að viðskiptin hafi átt að fara fram í þremur áföngum og væru þeir allir svipaðir að umfangi.

Blaðið segist hafa heimildir fyrir að heildarvirði viðskiptanna hafi verið um 1,5 milljónir dollara en það svarar til um 180 milljóna króna.

Blaðið segir að þrátt fyrir að samningum hafi verið rift séu þreifingar enn í gangi.