Samningaviðræður eru nú í gangi á milli fyrrum lykilstarfsmanna WOW air og þrotabús WOW air. Aðilar beggja vegna samningsborðsins verjast fregna af framgangi viðræðnanna.
Svanhvít Friðriksdóttir, fyrrverandi upplýsingafulltrúi WOW air og einn af lykilstjórnendum nýs flugfélags sem áætlað er að stofna, sagði í samtali við Hringbraut að hún gæti ekki tjáð sig um samningaviðræðurnar að svo stöddu.
Í gær vildi Sveinn Andri Sveinsson, annar af skiptastjórum þrotabús WOW air, ekki tjá sig við Hringbraut aðspurður um hvort nýtt félag Skúla Mogensen stæði í samningaviðræðum við þrotabúið um kaup á eignum þess.
Ekki er ennþá vitað hvaðan leiguflugvélarnar fimm sem nýja flugfélagið hyggst reka munu verða leigðar. Keflavíkurflugvöllur hefur sem kunnugt er einungis takmörkuð tímahólf og er ljóst að ætli nýja flugfélagið ekki að missa af þeim verða samningsviðræður að ganga hratt fyrir sig. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir nýja flugfélagið þar sem það áætlar að fljúga til Norður Ameríku og þau tímahólf af skornum skammti.
Tvö tímahólf eru þegar farin eftir að WOW air tilkynnti um gjaldþrot í síðustu viku og vitað er til þess að fleiri flugfélög eru að skoða hvort þau hefji eða bæti við flugum til Keflavíkur.
Hollenska flugfélagið Transavia hefur tilkynnt að það hyggist hefja flug frá Amsterdam til Keflavíkur í sumar, eða frá 5. júlí. Mun Transavia fljúga þrisvar í viku.
Þá mun ungverska flugfélagið Wizz Air auka við flugferðir sínar til og frá landinu með því að fljúga á hverjum degi frá Lundúnum til Keflavíkur frá lokum maí til loka október.