Sáttaviðræðum slitið - ragnar: „ríkið hef­ur ekki áhuga á að ljúka mál­inu með sam­komu­lagi“

Samningaviðræðum milli stjórnvalda og hinna fimm sýknuðu í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum hefur verið slitið. Íslenska ríkið ákvað að slíta umræðunum eftir að Guðjón Skarphéðinsson, einn hinna sýknuðu, hafnaði boði sáttanefndar stjórnvalda.

Þetta staðfesti Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns í samtali við Mbl.is. Guðjón hafði farið fram á rúman milljarð króna í miskabætur og um það bil 400 milljónir að auki í bætur fyrir missi atvinnutekna.

Sáttanefndin hafði úr 600 milljónum króna alls að spila fyrir fimmmenninganna. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafði ríkið bætt eitthvað við upphæðina en bætur fyrir einstakling fóru ekki yfir 200 milljónir. Því er ljóst að mikið ber í milli.

„Það er senni­lega eng­in úr­lausn önn­ur úr því að ríkið hef­ur ekki áhuga á að ljúka mál­inu með sam­komu­lagi,“ seg­ir Ragn­ar og vísar til þess að ríkið hafi frá upphafi gefið það í skyn að ef farið yrði fram á bæt­ur sem ríkið teldi of háar yrði dóm­stóla­leiðin alltaf niðurstaðan. Það hafi nú feng­ist staðfest.

Hann segir um alvarlegustu dómsmorð seinni tíma á Íslandi vera að ræða. Nú muni það líkast til verða dómstóla að kveða á um bætur í málinu. „Þetta er ekki flókið mál, það þarf ekki að sanna eitt né annað, það þarf að ákveða fjár­hæð. Í máli Guðjóns er rík­inu skylt að lög­um að bæta hon­um tjón sem hann varð fyr­ir og það er svo­kölluð hlut­læg bóta­skylda rík­is­ins.“