Samningar iðnaðarmanna í höfn

Það fór eins og spáð hafði verið í gærmorgun; samningar þeirra sex iðnaðarmannafélaga sem voru í leið í vinnustöðvun á miðnætti tókust á síðasta degi - og hefur því verkfalli, sem haft hefði víðtæk áhrif í samfélaginu, verið afstýrt.

Fé­lög­in sem skrifuðu und­ir kjara­samn­inga við Sam­tök at­vinnu­lífs­ins hjá rík­is­sátta­semj­ara í gærkvöld voru Fé­lag hársnyrti­sveina, Grafía/​​FBM, Mat­vís, Rafiðnaðarsam­band Íslands, Samiðn og Fé­lag vél­stjóra og málm­tækni­manna.

Georg Páll Skúla­son, formaður Grafíu/​Fé­lags bóka­gerðamanna, sagð­ist í samtali við mbl.is í gærkvöld vera vera sæmi­lega sátt­ur með kjara­samn­ing­inn miðað við allt, en þetta hafi verip löng lota og hart barist og mikiðp tekist á allan tímann. \"Maður vill auðvitað alltaf meira og legg­ur upp með það, en ég er sæmi­lega sátt­ur með upp­sker­una,“ seg­ir hann í sam­tali við vefinn.

Viku­langt verk­fall iðnaðarmanna hafði verið boðað á miðnætti í gær, en því hefur nú verið aflýst. 

Georg Páll seg­ir nauðsyn­legt að menn tali sam­an al­veg til enda, til þess að reyna til þraut­ar að af­stýra verk­föll­um. Það sé mjög mik­il­vægt fyr­ir alla.