Samkynhneigðir írar mega giftast

Allt bendir til að Írar hafi samþykkt lögleiðingu hjónabands fólks af sama kyni í þjóðaratkvæðagreiðslu sem haldin var í gær. Írland verður þar með tuttugasta landið í heiminum til að lögleiða samkynja hjónabönd, en jafnframt það fyrsta til að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.


Breyta þarf stjórnarskrá Írlands til að hægt sé að lögleiða hjónaband samkynhneigðra, og um það var kosið í í kosningunni í gær.


Kaþólska kirkjan lagðist gegn tillögunni og beitti sér gegn breytingu stjórnarskrárinnar, en meirihluti Íra virðist styðja rétt samkynhneigðra til að ganga í hjónaband.  Endanlegrar niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar er að vænta bráðlega.