Samkynhneigð kona verði forseti

„Fer ekki best á því að næsti forseti verði kona? Og helst þá samkynhneigð. Og ekki skemmir fyrir að hún sé fötluð og af öðrum uppruna en íslenskum.“

Þetta skrifar Gunnar Smári Egilsson í færslu á eigin fésbók eftir að þau tíðindi urðu ljós í gær að Ólafur Ragnar Grímsson hætti forsetatíð í ár og að nýr forseti verði kosinn í júní. Íslendingar leita nú logandi ljósi að forsetaefnum og sýnist sitt hverjum.

„Hún mætti líka gjarnan vera ómenntuð, alin upp í fátækt og hafa mátt þola umtalsvert mótlæti í lífinu. Best færi á því að hún hefði setið í fangelsi um tíma, orðið gjaldþrota oftar en einu sinni og þurft reglulega að leggjast inn á geðdeild,“ gætir Gunnar Smári við sem tekið hefur við útgáfu Fréttatímans. Eins og kunnugt er þarf forsetaefni að vera vammlaust og má ekki hafa sakaskrá.

Og rökin eru þessu að mati blaðamannsins: „Valdatíma vellukkaða fólksins verður að ljúka. Hann felur í sér kúgun og niðurlægingu meirihluta fólks, okkar sem eru mislukkað á svo margan máta. Hinir illa gerðu, ófarsælu og óheppnu eiga að velja einhvern úr sínum hópi sem næsta forseta; einhvern sem sæmir fanga fálkaorðum en sviptir þá þeim ekki.“