Samkynhneigð hjón frá Rússlandi og Lettlandi sem giftu sig hér á landi árið 2011 fá ekki skilnað hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu því lagaheimild skortir.
Fréttablaðið greinir frá þessu í dag og ræðir við Láru V. Júlíusdóttur, lögmann hjónanna sem segir að engin lagaákvæði heimili skilnaði erlendra ríkisborgara búsettra erlendis hér á landi. Þá fái hjónin heldur ekki skilnað í heimalöndum sínum þar sem hjónabönd samkynhneigðra séu ekki viðurkennd þar.
Lára bendir á að samkynhneigð erlend pör hafi verið hvött til að koma hingað til lands til að gifta sig þrátt fyrir að ekki hafa verið gert ráð fyrir í lögum að þau geti skilið: \"Samkynhneigðir eru að koma hingað til lands til að gifta sig en svo þegar kemur að skilnaði koma þau að lokuðum dyrum,“ segir hún í blaðinu í dag.
Hún segist jafnframt hafa reynt að vekja athygli stjórnvalda á málinu en talað fyrir daufum eyrum: \"Ég er búin að skrifa Alþingi og innanríkisráðuneytinu bréf og tala sérstaklega við innanríkisráðherra og einhvern veginn yppa allir öxlum,“ segir Lára. Hún hafi einnig sent allsherjarnefnd Alþingis tillögu að lagabreytingu en fengið takmörkuð viðbrögð.
\"Þetta er aðkallandi mál. Við getum ekkert verið að bjóða upp á þessa þjónustu og gefa okkur út fyrir að vera voða frjálslynd ef sú víðsýni nær ekki lengra en þetta,“ segir hún.