Samkomulag um veggjöld ekki frágengið

Haraldur Benediktsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokssins og fyrsti þingmaður norðvestur kjördæmis var inntur eftir því í viðtali  við vef bænda, bb.is hvort rétt væri að samkomulag væri orðið milli stjórnarflokkanna um að taka upp veggjöld í öll jarðgöng.

Haraldur sem situr í fjárlaganefnd sagði að honum væri ekki kunnugt um að samkomulag væri fullfrágengið  og sagði að það væru margir lausir endar sem þyrfti að hnýta.