Fulltrúar Breta og Evrópusambandsins hafa náð saman um stóran hluta Brexit úrsagnarferlisins en ennþá er þó eftir að fullklára nokkur atriði, til dæmis lausnina hvað varðar landamæri Norður-Írlands, að því kemur fram í frétt BBC. Þar er enn gert ráð fyrir að Norður Írland verði áfram innan Evrópumarkaðarins, þar til önnur betri lausn finnst.
Aðlögunartími úrsagnarinnar mun gilda frá 29. mars á þessu ári fram til ársloka 2020.
Í samningunum tókst að fá botn í réttindi 4,5 milljóna ESB borgara í Bretlandi og 1,2 milljóna Breta innan ríkja ESB. Íbúar ESB ríkja sem flytjast til Bretlands á aðlögunartímabilinu munu til dæmis hafa sama rétt og þeir sem komu fyrir Brexit.
Theresa May forsætisráðherra sagði í samtali við BBC að niðurstaðan sýni góðan vilja beggja vegna samningaborðsins og því útlit fyrir samning sem báðir samningsaðilar geti sætt sig við.