Samkomulag í höfn

 

Leiðtogar evruríkjanna náðu í morgun samkomulagi í samningaviðræðum um skuldavanda Grikklands. 

Þetta er niðurstaða fundar sem stóð yfir í rúma sextán klukkustundir í Brussel í nótt, en Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins tilkynnti niðurstöðu hans á Twitter rétt fyrir klukkan sjö í morgun. 

Þar segir Tusk að leiðtogar evruríkjanna hafi samþykkt samninginn einróma og að framundan taki við róttækar efnahagslegar umbætur og fjárhagsaðstoð. Önnur atriði samningsins hafa ekki verið gefin upp að svo stöddu.