Samkeppnisyfirvöld skoði verðhækkanir á mjólk

ASÍ og BSRB eiga engan fulltrúa í verðlagsnefnd búvöru. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ telur það ekki hafa verið mistök á sínum tíma að tilnefna engan fyrir hönd launþegahreyfingarinnar í nefndina. Hann segir það vera úrelt að nefnd ákveði verðhækkanir á búvöru og skorar á samkeppnisyfirvöld að skoða málið nánar. 

Fréttablaðið greinir frá þessu. Í síðustu viku ákvað verðlagsnefnd búvöru að hækka verð á mjólk og mjólkurafurðir um 3,5%. Breytingin tekur gildi um næstu mánaðarmót. Gylfi segir nefndina aldrei hafa haft aðgang að gögnum sem þurfi að vera til staðar til að ræða verðlag með eðlilegum hætti og því sé það úrelt að ákveðin nefnd taki ákvarðanir um verðhækkanir með þessum hætti. Hann segir ákvörðunina um verðhækkun algjörlega órökstudda. 

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB tekur í sama streng og Gylfi í samtali við Fréttablaðið. Hún undrast hækkunina og segir neytendur og bændur fyrst og síðast bera kostnaðinn af breytingunum.