Samkeppnishindranir á kef

Innanríkisráðuneyttið hefur ekki en þá brugðist við tilmælum Samkeppniseftirlitsins. Þau tilmæli voru birt hinn 15.október 2015. Tilmælin eru um að ráðuneytið grípi til tafarlausra aðgerða til að draga úr samkeppnishindrunum við úthlutun afgreiðslutíma til flugfélaga á Keflavíkurflugvelli.

Félag atvinnurekenda hefur málið til meðferðar. Félagið leggur nú í þriðja sinn spurningar fyrir ráðherra samgöngumála um hvað stjórnvöld hyggjast gera í málinu.

Samkeppniseftirlitið segir í framhaldi af kvörtun frá flugfélaginu Wow Air að fyrirkomulag við úthlutun afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli raski samskeppni. Það sé til tjóns fyrir viðskiptavini Wow Air og keppinauta í áætlunarflugi og samfélagið allt. 

Þeim tilmælum er beint til stjórnvalda að þau beiti sér fyrir tafarlausum aðgerðum sem miða að því að draga úr þessum samkeppnishindrunum.

Ekki er boðlegt að einu og hálfu ári eftir að tilmæli Samkeppniseftirlitsins voru kynnt hafi stjórnvöld ekki brugðist við þeim með neinum hætti segir í bréfi frá Félagi atvinnurekenda til Jóns Gunnarssonar samgönguráðherra.