Samkeppniseftirlitið biður landsmenn alla að kjósa í netkosningum um bestu „soft law“, eða „mjúklaga“, skýrsluna. Stofnunin var tilnefnd til alþjóðlegu verðlaunanna „Antitrust Writing Awards 2021“, eða „Samkeppnisskrifaverðlaunanna 2021“.
Stofnunin deilir þessu á Facebook og segir: „Húrra!“
Dómnefnd ásamt netkosningu lesenda skera svo úr um sigurvegara sem verða krýndir á rafrænni ráðstefnu 30. júní.