Samkeppni skortir sárlega á íslandi

Samkeppni á Íslandi er af skornum skammti í samanburði við önnur lönd sem eru aðilar að Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, OECD - og virðast stjórnvöld hér á landi lítið aðhafast til að auka virkni hennar.

Þetta er mat forráðamanna OECD og tekur Samkeppniseftirlitið á Íslandi undir þessa gagnrýni. Athygli vekur að aðeins ein atvinnugrein hér á landi er með minni viðskiptahömlur en almennt þekkist innan landa OECD, en það er bókhald. Atvinnugreinar sem eru álíka samkeppnishæfar hér og landi í öðrum OECD-löndum eru arkitektúr, flutningar á sjó og landi, lögfræðiþjónusta og verkfræði.

Þá er ótalinn sá mikli fjöldi atvinnugreina á Íslandi sem býr við mun minni samkeppni en almennt þekkist í þeim löndum sem Íslendingar vilja helst og mest bera sig saman við. Þar má nefna bankastarfsemi, byggingariðnað, dreifingu, kvikmyndaiðnað, póstþjónustu, tölvustarfsemi, upptöku- og hljóðvinnslu og vegaflutninga.

Í frétt sem birtist í Fréttablaðinu um þetta efni í gærdag er kallað eftir því að stjórnvöld dragi úr hindrunum fyrir ný fyrirtæki og að erlendri samkeppni verði gert auðveldara fyrir hér á landi.