Menntamálaráðherra mun skipa starfshóp til að gera úttekt á starfsemi og stöðu fjölmiðla sem starfræktir eru utan höfuðborgarsvæðisins. Þessari vinnu skal vera lokið eigi síðar en hinn 1.nóvember nk.
Hópnum yrði falið að leggja fram tillögur sem feli í sér aðferðir og leiðir til að efla og tryggja stöðu landsbyggðarfjölmiðla þannig að þeir fái gegnt lýðræðis- menningar- upplýsinga- og fræðsluhlutverki sínu.
Fram hefur komið í máli nokkura þingmanna að styrkja þyrfti rekstrargrundvöll staðbundinna fjölmiðla. Stærri fjölmiðlar hafi auk þess ekki tök á eða áhuga á að beina sjónum að málefnum nærsamfélagsins á landsbyggðinni segir á einum stað í nefndaráliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
rtá