Í kjölfar erindis Ara Edwald, forstjóra MS, á fundi Viðskiptaráðs um daginn þar sem hann ræddi samkeppnisumhverfi fyrirtækja, spratt upp nokkur umræða um heilbrigða samkeppni í íslensku viðskiptalífi. Margir tóku undir skilaboð Ara og ritstjóri Fréttablaðsins ritaði í kjölfarið leiðara þar sem hún bendir meðal annars á að ekki væri einungis hægt að líta á aðra íslenska fjölmiðla sem samkeppnisaðila þeirra þar sem samkeppni frá Facebook og Google væri orðin umtalsverð og íslenskur auglýsingamarkaður væri markaður af því. Eins bendir hún á samkeppnisumhverfi á smásölumarkaði, hversu auðvelt það væri í raun fyrir Costco að ryðja íslenskum samkeppnisaðilum af markaði í krafti stærðarinnar og hagkvæmni sem af henni hlýst. Og það er stóri punkturinn. Þetta á líka við um íslenskan landbúnað.
nánar á visir.is
http://www.visir.is/g/2018180519663/samkeppni-a-jafnrettisgrundvelli