Sami maður í báðum stólum

Lögmaðurinn Stein­ar Þór Guðgeirs­son­ gegndi sérstöku hlutverki þegar ríkið, það er einkahlutafélag þess Lindarhvoll, seldi 17,7% eign­ar­hlut í Klakki. Steinari, sem var einmitt stjórnarmaður í Klakki, var jafnframt falið að taka á móti tilboðum í eignarhlutinn, án þess að settar væru neinar sérstakar leikreglur. Viðskiptablað Morgunblaðsins fjallar um þetta í dag.

„Til­boðsferli við sölu Lind­ar­hvols á 17,7% eign­ar­hlut í Klakki var ógagn­sætt. Heim­ild­ir ViðskiptaMogg­ans herma að sam­kvæmt skil­mál­um sem lágu fyr­ir er hlut­ur­inn var seld­ur hafi bjóðend­um borið að senda boð sín á til­tekið net­fang. Fyr­ir­mæl­in báru ekki með sér að gerðar væru ráðstaf­an­ir til þess að til­boðin væru óopnuð þar til til­boðsfrest­ur væri út runn­inn,“ segir í Mogganum.

Niðurstaða Lind­ar­hvols varð sú að Burlingt­on Loan Mana­gement fékk hlut­inn. En það fyrirtæki átti áður í Klakka og nú sam­tals 75 prósent í Klakkan en ein helsta eign Klakka er fjár­mála­fyr­ir­tækið Lýs­ing.

„At­hygli vek­ur að lén Lind­ar­hvols, lind­ar­hol­leign­ir.is, þangað sem senda átti til­boðin er skráð á lög­fræðistofu Stein­ars Þórs Guðgeirs­son­ar sem var stjórn­ar­maður í Klakka þegar hlut­ur­inn var seld­ur.

 Ekki hafa feng­ist svör frá Stein­ari Þór þrátt fyr­ir eft­ir­gangs­muni, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um mál þetta í ViðskiptaMogg­an­um í dag.“