Samherji sendi bréf á Ásgeir – Ætluðu að „afgreiða hann“

Útgerðarrisinn Samherji sendi bréf á Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra eftir að hann kom í viðtal við Stundina þar sem hann gagnrýndi Samherja og talaði um að hagsmunaaðilar væru of valdamiklir í íslensku samfélagi. Kjarninngreinir frá þessu. Seðlabankinn neitar að afhenda bréfið og ber fyrir sig trúnaði. Samherji hefur þá ekki svarað fyrirspurnum um hvað stendur í bréfinu.

Kjarninn leiðir að því líkum að Samherji kunni að hafa beðið Ásgeir á útskýringu á orðum sínum líkt og fyrirtækið gerði við Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra þegar hún sagði fyrirtækið hafa „gengið of langt“. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði framgönguna „stórfurðulega“.

Í viðtalinu gagnrýndi Ásgeir Samherja fyrir að kæra fimm starfsmenn bankans til lögreglu. „Það má alveg berja á þessari stofnun, hún er virki, en það má ekki gera þetta svona persónulega gegn fólki,“ sagði Ásgeir. Sama dag og viðtalið birtist var kæran látin niður falla.

Kjarninn birtir svo samskipti innan „skæruliðadeildarinnar“ svokölluðu sem samanstendur af Þorbirni Þórðarsyni almannatengli, Örnu McClure lögmanni og Páli Steingrímssyni skipstjóra þar sem þau ræða um viðtalið við Ásgeir.

„Bara svo þið vitið þá vísaði lögreglustjórinn á Vestfjörðum kærunni frá a grundvelli þess að bankinn hafði brotið eins a öðrum í 18 málum. Sumsé eins og ef þú segist ekki eiga að fá sekt af því að þú keyrðir yfir 18 önnur rauð ljós. Ríkissaksóknari er með málið og hefur kallað eftir gögnum frá lögreglustjóranum. Þessi rök halda vitaskuld ekki vatni. Þu sleppur ekki fyrir það eitt að hafa brotið oftar af þér. Öðru fremur bendir það til kerfisbundinna brota,“ segir í samtalinu. Þá töluðu þau um að hægt væri að „afgreiða Ásgeir í 250 orðum“ til þá að svara því sem hann sagði í viðtalinu.