Samherji hefur birt samanburð á launakostnaði við hvern starfsmann í fiskvinnslu á Íslandi, í Noregi og Þýskalandi. Kostnaðurinn er hæstur á hér á landi. Vísað er til þess að á undanförnum árum hafi fjöldi Íslendinga flutt til Noregs og því hafi kostir fólks og kjör verið í umræðunni.
Í samanburðinum er tekið tillit til þess að í norskri fiskvinnslu eru einungis greiddir 7,5 tímar fyrir dagvinnu sem krefst 8 tíma viðveru en á Íslandi eru greiddir 8 tímar fyrir sömu viðveru og sömu neysluhlé. Þetta er vegna þess að á Íslandi kveða kjarasamningar á um að greiða starfsfólki í fiskvinnslum öll neysluhlé ólíkt því sem gerist í Noregi og Þýskalandi. Frá þessu er greint á mbl.is.
Samkvæmt útreikningum Samherja nemur launakostnaður á klukkustund að meðaltali 3.501 krónu í fiskvinnslu Samherja á Dalvík. Kostnaðurinn er næst hæstur í Bolfiskvinnslu í Noregi þar sem hann nemur 3.433 krónum. Lægstur er hann í bolfiskvinnslu í Þýskalandi þar sem kostnaðurinn nemur 2.207 krónum.