Útgerðarrisinn Samherji leitaði til almannatengla áður en þeir skrifuðu afsökunarbeiðnina sína. Samherji sendi frá sér yfirlýsingu þar fyrirtækið gekkst við því að hafa gengið of langt í viðbrögðum sínum við fréttum Stundarinnar og Kveik við meintri mútustarfsemi í Namibíu. Stundin og Kjarninn hafa svo birt fréttir sem byggja á tölvupóstum og rafrænu spjalli svokallaðrar skæruliðasveitar, sem skipa þau Þorbjörn Þórðarson, almannatengill, Arna McClure, lögmaður Samherja, og Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja.
Ingvar Sverrisson, framkvæmdastjóri almannatengslafyrirtækisins ATON.JL, segir í samtali við Stundinaað Samherji hafi haft samband við ATON.JL um helgina. ATON.JL hafi svo sagt skoðun sína á þessu máli.
„Yfirlýsingin er alfarið á ábyrgð Samherja og þeir verða að svara fyrir hana,“ segir Ingvar. „Eins og ég segi: Þeir hringdu í okkur um helgina. Þetta er í raun það sem ég get sagt.“
Aðspurður hvort ATON.JL hafi skrifað afsökunarbeiðnina eða ekki sagði Ingvar: „Eins og ég segi þá vil ég ekki tjá mig eitt né neitt um þá ráðgjöf sem við gefum umfram það sem ég hef sagt.“